Forfattere Diverse 
Skemmtisigling sem snerist upp í andhverfu sína [EPUB ebook] 

Sokongan

Hvernig gat þetta gerst, spurðu margir sig þegar fréttist af hörmulegu sjóslysi sem varð svo til uppi í landsteinum við Reykjavík í september 2005. Skemmtibát, sem hafði verið á siglingu innan hafnarsvæðisins, var siglt á Skarfasker, sem er rúma 300 metra undan landi þar sem styst er, með þeim afleiðingum meðal annars að maður á fertugsaldri lést við ásiglinguna og fimmtug sambýliskona hans drukknaði eftir að bátnum hvolfdi er honum var siglt stórskemmdum frá skerinu. Dómsmálið vakti mikla athygli auk þess að vekja upp sterkar tilfinningar, jafnvel hjá fólki sem tengdist ekki þeim sem létust á nokkurn hátt. Ástæðan var líkast til sú að skipstjóri og eigandi bátsins, sem var ölvaður þegar ásiglingin átti sér stað, neitaði að hafa verið við stjórnvöl bátsins þegar hann steytti á skerinu og sagði konuna, sem drukknaði eftir ásiglinguna, hafa verið við stýrið, en þessi framburður skipstjórans gekk þvert á niðurstöður rannsókna lögreglu og réttarmeinafræðings. Þá hafði skipstjórinn ekki gripið til björgunarráðstafana af neinu tagi í kjölfar ásiglingarinnar heldur siglt bátnum frá skerinu, þó ekki stystu leið að landi, uns honum hvolfdi. –

€1.99
cara bayaran

Mengenai Pengarang

Í bókunum ‘Norræn sakamál’ segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

Beli ebook ini dan dapatkan 1 lagi PERCUMA!
Bahasa Icelandic ● Format EPUB ● Halaman-halaman 14 ● ISBN 9788726512298 ● Saiz fail 0.4 MB ● Penerbit SAGA Egmont ● Bandar raya Copenhagen ● Negara DK ● Diterbitkan 2020 ● Muat turun 24 bulan ● Mata wang EUR ● ID 7557871 ● Salin perlindungan Social DRM

Lebih banyak ebook daripada pengarang yang sama / Penyunting

73,893 Ebooks dalam kategori ini