H.C. Andersen 
Penninn og blekbyttan [EPUB ebook] 

Sokongan

Á skrifborði skáldsins takast penninn og blekbyttan á. Ágreiningsefnið er hvort þeirra eigi stærri þátt í sköpun eiganda síns. Blekbyttan stendur á því að öll þau undur sem penninn færi á blaðið séu sótt í hennar dimmbláu djúp. Penninn hinsvegar vill ekki láta gera lítið úr sinni milligöngu í málinu, enda sé það hann sem færi hugmyndirnar í letur, með hjálp styrkrar handar síns skáldlega bróður. Um þetta þræta þau uns skáldið sjálft skilar sér heim. Það hefur þá verið á undursamlegum fiðlutónleikum og er sannarlega uppnumið. Í hrifnæmisástandi sínu sest það niður og skrifar sína eigin hugleiðingu um sköpunina og hinn raunverulega meistara hennar. En niðurstaðan er hvorki pennanum né blekbyttunni í hag. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. –

€1.99
cara bayaran

Mengenai Pengarang

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Ekki er ósennilegt að sagan um pennann og blekbyttuna byggi að einhverju leyti á hans eigin lífi. Þar veltir hann fyrir sér stöðu listamannsins, hver svo sem list hans er, gagnvart lífinu. Hann fjallar um innblástur og starfshætti en þó á þann lágstemmda máta að ljá verkfærum hans rödd. En kannski erum við öll verkfæri og sá sem heldur um stýristaumana skapari með stóru Essi.

Beli ebook ini dan dapatkan 1 lagi PERCUMA!
Bahasa Icelandic ● Format EPUB ● Halaman-halaman 25 ● ISBN 9788726237610 ● Saiz fail 0.2 MB ● Umur 17-8 tahun ● Penterjemah Steingrímur Thorsteinsson ● Penerbit SAGA Egmont ● Bandar raya Copenhagen ● Negara DK ● Diterbitkan 2020 ● Muat turun 24 bulan ● Mata wang EUR ● ID 7481076 ● Salin perlindungan Social DRM

Lebih banyak ebook daripada pengarang yang sama / Penyunting

4,461 Ebooks dalam kategori ini