Friðurinn á hvítasunnuhátíðinni árið 2005 var rofinn með frétt af óhugnanlegu manndrápi í fjölbýlishúsi í Kópavogi. Eins og stundum áður virtist það hafa verið óþarfi að þetta gerðist og erfitt að skilja ástæður þess. En síðar kom í ljós að þarna höfðu legið að baki aldagamlir siðir og hefðir fjarlægs menningarsamfélags og trúarbragða sem Íslendingum voru ókunnug. Það var ekki auðvelt að setja sig inn í þau sterku áhrif sem slíkur arfur hefur á fólk sem elst upp við þessar aðstæður. –
Giới thiệu về tác giả
Í bókunum ‘Norræn sakamál’ segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.