Frank Harris 
Ævi mín og ástir [EPUB ebook] 

支持

Sjálfsævisaga rithöfundarins og leikarans Frank Harris (1855 – 1931) kom út í íslenskri þýðingu Baldurs Hólmgeirssonar árið 1958. Harris rekur ævi sína og örlög, allt frá barnæsku til kvennafars á fullorðinsárum. Ævisaga hans hefst á fleygu orðunum: ‘Minnið er móðir listagyðjanna og sönn fyrirmynd listamannsins.’ Eftir þeirri speki er sjálfsævisaga Harris rituð. Hann segir frá kynnum sínum af konum í miklum smáatriðum og teiknaði myndir til sem voru innblásnar af ævintýrum hans. Frásögnin og teikningarnar sem þeim fylgdu vakti mikinn usla á sínum tíma og var bókin bönnuð í áratugi í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þrátt fyrir það varð Ævi mín og ástir metsölubók, hún þykir enn vera merkilegt erótískt verk og seldist dýrum dómum í Frakklandi þar sem hún var ekki bönnuð. ‘Ævi mín og ástir’ kynnir lesanda einnig vel fyrir samtíma höfundarins, við sögu koma fjölmargar þekktar persónur sem Harris kynntist á sinni ævi. Þar má nefna: Oscar Wild, Heinrich Heine, George Meredith og fleiri samtímamenn Harris. –

€8.99
支付方式

关于作者

Frank Harris (1855 – 1931) fæddist 14. Febrúar 1855 í Galway á Írlandi. Hann kom víða við á viðburðaríkri ævi sinni. Hann flutti til Bandaríkjanna á fullorðinsárum til að læra lögfræði en síðar lagði hann leið sína aftur til Evrópu og settist að í London. Honum var margt til lista lagt. Frank Harris var þekktur rithöfundur, ritstjóri og blaðamaður. Hann hóf feril sinn sem ritstjóri ýmissa dagblaða og tímarita, þar á meðal Fortnightly Review og Saturday Review.Frank Harris skrifaði nokkrar skáldsögur og einnig ritaði hann ævisögu Oscar Wilde, sem þótti tímamótaverk. Harris er þó þekktastur fyrir sjálfsævisöguleg verk sín, þar á meðal ‘Ævi mín og ástir’. Ritstíll hans var umdeildur á sínum tíma og hann uppskar misjafnar móttökur á verkum sínum. Harris var margslungin persóna og ef af orðspori hans má dæma var hann heillandi og erfiður í senn. Þrátt fyrir þetta var hann mjög virtur í bókmenntaheiminum þar til hann lést 26. ágúst 1931. Verk hans höfða til þeirra sem hafa áhuga á bókmenntasögunni og litríkum reynslusögum.

购买此电子书可免费获赠一本!
语言 冰岛的 ● 格式 EPUB ● 网页 214 ● ISBN 9788728386972 ● 文件大小 0.5 MB ● 翻译者 Baldur Hólmgeirsson ● 出版者 SAGA Egmont ● 市 Copenhagen ● 国家 DK ● 发布时间 2023 ● 下载 24 个月 ● 货币 EUR ● ID 9028833 ● 复制保护 社会DRM

来自同一作者的更多电子书 / 编辑

73,893 此类电子书