Georgette Heyer 
Ástardraumar rætast [EPUB ebook] 

支持

Þrátt fyrir að njóta mikillar kvenhylli hefur Sir Gareth Ludlow sýnt ástarmálum lítinn áhuga eftir skyndilegan missi eiginkonu sinnar sjö árum áður. Það kemur því öllum í opna skjöldu er hann hyggst biðja um hönd kunningjakonu sinnar, Hester Theale. Þegar hún hins vegar fréttir af áætlunum Gareth, vakna hjá henni miklar efasemdir enda langt um liðið síðan hún dró sig í hlé frá tilhugalífi. Á leið sinni til að bera upp bónorðið hittir Gareth óvænt unga vegalausa stúlku, sem hann tekur undir verndarvæng sinn. Færist þá hiti í leikinn og leið Gareth að hjónabandi reynist ekki eins greið og vænta mátti.

€5.99
支付方式

关于作者

Georgette Heyer (1902-1974) var enskur rit- og smásagnahöfundur. Frá unga aldri lagði hún stund á skriftir og var aðeins sautján ára þegar frumraun hennar á ritvellinum ‘The Black Moth’ var gefin út. Það reyndist einungis byrjunin á tilkomumiklum ferli en Georgette skrifaði yfir 57 bækur um dagana og nutu margar þeirra vinsælda um allan heim. Hún var brautryðjandi í flokki sakamálasagna og sögulegrar rómantíkur og lagði sérstaka áherslu á sögur sem atvikuðust á ríkisstjóratímanum í Bretlandi. Hér á landi höfðu margir unun af bókum hennar en fyrsta þýðingin var gefin út af Vöku árið 1984 og síðan fleiri í framhaldinu.

购买此电子书可免费获赠一本!
语言 冰岛的 ● 格式 EPUB ● 网页 183 ● ISBN 9788727158761 ● 文件大小 0.4 MB ● 翻译者 Ásgeir Ingólfsson ● 出版者 SAGA Egmont ● 市 Copenhagen ● 国家 DK ● 发布时间 2024 ● 下载 24 个月 ● 货币 EUR ● ID 9602608 ● 复制保护 社会DRM

来自同一作者的更多电子书 / 编辑

771,468 此类电子书