H.C. Andersen 
Stúlkan, sem gekk á brauðinu [EPUB ebook] 

支持

Stúlkan Inga er reglulega illt og óprúttið barn. Hún iðkar það að kvelja þá sem minna mega sín, auk þess sem drambsemi hennar er svo mikil að hún sér ekki sólina fyrir sjálfri sér. Er hún vex úr grasi versnar hún um allan helming, en þar sem hún er einstaklega fríð sýnum fyrirgefst henni margt. Dag einn er hún á leið í heimsókn til foreldra sinna. Meðferðis hefur hún brauð sem húsmóðir hennar hefur gefið henni til að færa fátækri móður sinni. Kemur hún þá að forarpolli og óar við að óhreinka skóna sína fínu. Bregður hún á það ráð að kasta brauðinu í pollinn til að stíga á það. Ekki vill þó betur til en svo að hún sekkur á bólakaf og lendir í brugghelli mýrarkonunnar. Þar eru staddir heldur en ekki merkir gestir, þau kölski og amma hans. Sú gamla krefst stúlkunnar Ingu sér til handa, og hefst þá píslarvist hennar í helvíti. En á drambsama stúlkan afturkvæmt?Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. –

€1.99
支付方式

关于作者

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. ‘Stúlkan sem gekk á brauðinu’ er hressandi og óvægin saga þar sem löstum og drambsemi eru gerð hin beittustu skil. Hvergi er dregið úr kvölum og pínslum stúlkunnar Ingu og kostar iðrun hennar ófá tár.

购买此电子书可免费获赠一本!
语言 冰岛的 ● 格式 EPUB ● 网页 25 ● ISBN 9788726237566 ● 文件大小 0.2 MB ● 年龄 17-8 年份 ● 翻译者 Steingrímur Thorsteinsson ● 出版者 SAGA Egmont ● 市 Copenhagen ● 国家 DK ● 发布时间 2020 ● 下载 24 个月 ● 货币 EUR ● ID 7479803 ● 复制保护 社会DRM

来自同一作者的更多电子书 / 编辑

4,416 此类电子书