One Thousand and One Nights 
Sjöunda og síðasta ferð Sindbaðs farmanns (Þúsund og ein nótt 43) [EPUB ebook] 

支持

Langar þig til þess að komast að því hvað gerist í síðustu ferð Sindbaðs? Þegar hann var á leið sinni aftur heim lendir hann í miklum vandræðum. Sjónræningjar ráðast á skip hans og Sindbað er seldur sem þræll til auðugs kaupmanns. Hann gæti fengið frelsi sitt aftur á ný, en einungis ef honum tekst að skjóta niður fíla og safna saman beinum þeirra fyrir fílabeinsturn. Svo Sindbað hefst handa. Það sem hann vissi ekki er að allir hinir þrælarnir sem höfðu þegar reynt að ljúka verkefninu höfðu verið drepnir. Mun Sindbað takast að komast í burt lifandi?Þetta er 43. sagan í röðinni af 46 ævintýrum í hinu klassíska safni ‘Þúsund og ein nótt’.Eftir að Sjarjar konungur er svikinn af konu sinni getur hann ekki treyst öðrum konum. Hann tekur sífellt við nýjar konur og afhausar þær svo. Þegar hann kynnist Sjerasade eru það töfrandi sagnamáttur hennar sem nær að halda henni á lífi, en sögur hennar heilla konung á þann hátt að hann fær sig ekki til þess að drepa hana. Ævintýralegu sögurnar sem innihalda forn heilræði hafa einnig þann mátt að geta breytt ákvörðunum og örlögum konungsins.

€1.99
支付方式

关于作者

Hin einstaka list þess að segja sögur birtist í samansafni ævintýra ‘Þúsund og einnar nætur’ sem hafa í margar aldir heillað ímyndunarafl kynslóða um allan heim. Það mætti jafnvel nefna sögurnar á meðal mikilfenglegustu framlaga Arabískra, Mið-Austurlenskra og íslamskra rita til heimsbókmennta. Heill hellingur af bókmenntum, tónlist, list og kvikmyndum hafa orðið til vegna innblásturs frá sögunum, sem halda áfram að hafa gríðarleg áhrif enn þann dag í dag. Sögurnar eru töfrum líkastar og uppfullar af ævintýrum og finna má margvíslegar uppfærslur af þeim í formi Aladdín, Alí Baba og Sindbað sæfara. Þú munt ekki sjá eftir því að gleyma þér um stund í ævintýrunum sem standa yfir í þúsund og eina nótt.

购买此电子书可免费获赠一本!
语言 冰岛的 ● 格式 EPUB ● 网页 4 ● ISBN 9788726593105 ● 文件大小 0.3 MB ● 年龄 17-13 年份 ● 翻译者 Steingrímur Thorsteinsson ● 出版者 SAGA Egmont ● 市 Copenhagen ● 国家 DK ● 发布时间 2021 ● 下载 24 个月 ● 货币 EUR ● ID 7924240 ● 复制保护 社会DRM

来自同一作者的更多电子书 / 编辑

42,548 此类电子书